Í vikunni opnaði vefsíða í Bretlandi með reiknivél sem getur reiknað hversu mikil áhrif einstaklingar hafa á umhverfi sitt. Reiknivélin er kannski ekki ósvipuð og reiknivélar Kolviðar og Orkuseturs, en hún er miklu nákvæmari. Hún spyr ýmissa spurninga um heimilisaðstæður og reiknar út hversu mikil áhrif heimilislífið hefur á umverfið, hún reiknar saman orkunotkun ýmissa heimilistækja og spyr um almenna notkun þeirra, að lokum spyr hún um samgöngur, hversu marga bíla heimilið rekur, hversu mikið er keyrt á ári, eru almenningssamgöngur notaðar, hversu oft er farið í frí á ári, hvernig og hvert? Allt þetta er svo reiknað saman og út kemur niðurstaða, nákvæm tala hversu mikin koltvísýring einstaklingur eða heimili, losar út í andrúmsloftið á ári hverju. Út frá þessu fæst ítarlegt plan um hvernig þú getur minnkað losun koltvísýrings og umhverfisáhrif.

Vefurinn er settur á stofn af ríkisstjórn Bretlands og er unnin eftir nákvæmum tölum vottuðum af ríkisstjórninni.
Umhverfisráðherra Breta, David Miliband sem opnaði vefsíðuna segir að þó að margir væru að leggja sitt af mörkum til að draga úr losun koltvísýrings og draga úr loftslagsbreytingum, væru margir „óvissir um hvað best væri að gera til lifa vistvænna og hversu mikil áhrif loftslagsbreytingarnar hafa.“ „Reiknivélin mun hjálpa fólki að ákveða hvað er best að gera til að vera viss um að það leggi sitt af mörkum“ sagði Miliband.Reiknivélin er nýjung og notast aðeins við vottuð gögn. Uppfæra þarf öll gögn reglulega svo að niðurstöðurnar séu ávalt áreiðanlegar. Vélin sem nú er á síðunni er aðeins þar til reynslu en hún mun verða þróuð áfram til að gera hana betri og áreiðanlegri.

Martyn Williams baráttumaður um loftslagsmál og félagi í Vinum jarðar (Friend’s of the Earth) segir að ríkisstjórn Bretlands verði líka að einbeita sér að sinni eigin ábyrgð að draga úr losun kotvísýrings. „Svona reiknivélar geta hjálpað einstaklingum og fjölskyldum mikið að taka einfaldar og grænar ákvarðanir til að leggja sitt af mörkum til að draga úr loftslagsbreytingum.“ sagði Williams og bætti svo við „Þetta er engin syndaaflausn fyrir ríkisstjórnina og hún má alls ekki missa marks af markmiðunum, að draga verulega úr losun koltvísýrings í landinu.

Miliband vonast til þess að aðrar þjóðir fylgi fordæmi Bretlands og taki ábyrgð. Mestar áhyggjur hefur hann þó af Bandaríkjunum og óttast að þeir séu að dragast aftur úr í baráttunni. „Það er mikilvægt að fá þá með í baráttuna“ Hann sagði einnig að sum svæði í Bandaríkjunum væri tilbúin í baráttuna og að þar væri vaxandi áhugi á umhverfisvernd, en að það væri enn mjög langt í land.

sjá frétt á The Guardian

síða Kolviðar

síða Orkueturs

 

Birt:
22. júní 2007
Höfundur:
Vala Smáradóttir
Tilvitnun:
Vala Smáradóttir „Bretar opna vefsíðu með koltvísýrings reiknivél“, Náttúran.is: 22. júní 2007 URL: http://nature.is/d/2007/06/22/bretar-opna-vefsu-me-koltvsrings-reiknivl/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 12. janúar 2008

Skilaboð: