Lofstlagsbreytingar af völdum losun gróðurhúsalofttegunda (Co2) og áhrif þess á lífið á jörðinni er viðfangsefni Al Gore í kvikmyndinni An inconvenient truth sem kynnt var á Cannes ný verið og er nú sýnd í kvikmyndahúsum um allan heim. Eftir að halda fyrirlestra um málefnið í Bandaríkjunum í 30 ár réðst hann í að gera kvikmynd. Al Gore er fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og varð „næstum“ forseti í forsetakosningunum árið 2000 þó álit ófárra sé það að hann hafi í raun hlotið kosningu.

Umhverfismál er stóra málefnið í dag og „allra“ að axla ábyrgð varðandi losun gróðurhúsalofttegunda eru skýr skilaboð hans. Á vefsíðunni climatecrisis.net er m.a. tól sem reiknar út koltvísýringslosun þá sem borgarar eiga þátt í, reyndar er tólið gert fyrir bandarískar aðstæður en áhugavert er að skoða viðmiðin sem gengið er út frá. Það er eingöngu mögulekt að ná tökum á vandamálinu ef „allir“ taka þátt í að snúa þróuninni við, þar með taldir hinir almennu borgarar. Þeir þurfa að taka þátt með því að breyta neysluvenjum sínum verulega frá því sem er í dag. En til að vita „hvað“ við getum gert þarf að koma til aukin umhverfisvitund og skilningur á samhenginu milli umhverfisþátta og raunverulegra lífsþarfa okkar. Þannig er umhverfismennt það sem koma skal, í hvaða formi sem er. Því klukkan tifar.

Greinarhöfundi hefur ekki tekist að fá upplýsingar um hvenær myndin verður sýnd hérlendis en mikill áhugi er fyrir myndinni og því væri hvalreki að fá hana hingað sem fyrst. 

Birt:
4. júní 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Óþægilegur sannleikur“, Náttúran.is: 4. júní 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/21/otaegilegur_sannl/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. mars 2007
breytt: 16. maí 2007

Skilaboð: