Náttúruverndarsamtök Íslands mótmæla harðlega öllumáformum Landsvirkjunar og umhverfisráðherra um Norðlingaölduveitu. Með þessum áformum er gengið þvert gegn lögum rammaáætlun sem kveða skýrt á um að virkjunarkosti í verndarflokki beri að friðlýsa. Virkjunarkosturinn Norðlingaölduveita er í verndarflokki rammaáætlunar en Landsvirkjun og umhverfsráðherra hyggjast hafa þau lög að engu.

Verði af byggingu Norðlingaölduveitu yrði í fyrsta sinn ráðist í virkjanaframkvæmdir vesta Þjórsár og þar með raskað ósnortinni landslagsheild svæðisins og lífríki Þjórsárvera ógnað. Þessi fyrirhugaða aðför umhverfisráðherra og Landsvirkjunar að Þjórsárverum er sérlega blygðunarlaus þar sem gert var ráð fyrir að með rammaáætlun og fyrirliggjandi friðlýsingarskilmálum Umhverfisstofnunar um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum væri loks kominn  sátt algjöra verndun veranna enda hefur Umhverfisstofnun ítrekað lagt til að Norðlngaalda yrði innan stækkaðs friðlands.

Náttúruverndarsamtök Íslands heita á alla náttúruunnendur að sameinast gegn þessum áformum Landsvirkjunar og umhverfisráðherra og tryggja varanlega friðun Þjórsárvera.

Ljósmynd: Í Þjórsárverum, ljósm. Chiara Ferrari Melillo.

Birt:
13. nóvember 2013
Höfundur:
Árni Finnsson
Tilvitnun:
Árni Finnsson „Áformum Landsvirkjunar og umhverfisráðherra um Norðlingaölduveitu harðlega mótmælt“, Náttúran.is: 13. nóvember 2013 URL: http://nature.is/d/2013/11/13/aformum-landsvirkjunar-og-umhverfisradherra-um-nor/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: