Mengað meginlandsloft
Mengaður loftmassi frá Evrópu liggur nú sunnan við landið og búast má við að áhrifa hans gæti sunnanlands í dag og á morgun. Áhrifa loftmassans fór að gæta seinnipartinn í gær, sunnudag, en þá mátti greinilega sjá á mælitækjum að svifryk jókst í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði.
Ekki er þó um mjög mikla mengun að ræða. Gildi sem þessi mælast oft við umferðaþungar götur en munurinn nú er að mengunin er jöfn á stóru svæði. Þannig má t.d. búast við jafnmikill mengun í Laugardalnum, Heiðmörk eða á Stokkseyri.
Sjá greinina með öllum skýringarmyndum á vef Umhverfisstofnunar.
Birt:
18. ágúst 2008
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Mengað meginlandsloft“, Náttúran.is: 18. ágúst 2008 URL: http://nature.is/d/2008/08/18/mengao-meginlandsloft/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.