Áhugahópur um verndun Jökulsánna í Skagafirði hvetur verðandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar til að beita sér fyrir verndun ánna. Það er ljóst að þær hugmyndir sem uppi hafa verið um virkjun þeirra, samræmast ekki yfirlýstri umhverfisstefnu annars stjórnarflokksins, sem m.a. hefur friðun skagfirsku jökulsánna á stefnuskrá sinni. Nú er lag að fylgja þeirri stefnu eftir.

Mikil andstaða er í Skagafirði við Skatastaða- og Villinganesvirkjanir. Uppbygging álvers á Bakka við Húsavík mun engu að síður krefjast þessara virkjana. Til að vernda Jökulsárnar í Skagafirði - og aðrar náttúruperlur - er því nauðsynlegt að fallið verði frá áætlunum um að reisa álver á Bakka, að öðrum kosti verða þær áfram í gíslingu stóriðjustefnunnar.

Sjá vef áhugahópsins.
Myndin er af Runufoss í Runuhvísl, Vesturdal. Ljósmynd: Gísli Rúnar Konráðsson:
Sjá fleiri myndir
.
Birt:
22. maí 2007
Tilvitnun:
Áhugahópur um....Skagafirði „Hvatning til verðandi ríkisstjórnar“, Náttúran.is: 22. maí 2007 URL: http://nature.is/d/2007/05/22/hvatning-til-verandi-rkisstjrnar/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 24. maí 2007

Skilaboð: