Fyrirtæki og samfélagið: Sameiginlegur ávinningur
Þriðjudaginn 23. janúar kl. 8:30 - 10:00 standa Festa og Samtök atvinnulífsins fyrir ráðstefnunni "Fyrirtæki og samfélagið: Sameiginlegur ávinningur" á HIlton Reykjavík Nordica.
Á ráðstefnunni fá forsvarsmenn sex fyrirtækja, sem öll hafa innleitt hugmyndafræði um samfélagsábyrgð, sjö mínútur til að segja sína sögu:
- Hvers vegna að innleiða stefnu um samfélagsábyrgð?
- Hverju getur samfélagsábyrgð skilað fyrirtækinu?
- Hverjar eru helstu áskoranirnar sem þitt fyrirtæki stendur frammi fyrir þegar kemur að samfélagsábyrgð?
Sögumenn verða:
- Kristján Gunnarsson, meðeigandi Kosmos & Kaos
- Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi
- Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans (Landsbankinn)
- Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans (Síminn)
- Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
- Hulda Hreiðarsdóttir, stofnandi og yfirhönnuður fafu toys
Fundarstjóri verður Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Hálftíma fyrir og eftir ráðstefnuna verður tengsla- og markaðstorg þar sem ráðgjafar og þjónustaðilar á sviði samfélagsábyrgðar kynna starfsemi sína.
Fylgstu með fundinum á Twitter: #samfelagsabyrgd
Þátttaka kostar 6.900 fyrir félagsmenn (Festa, SA) og 9.500 fyrir utanfélagsmenn. Verðið hækkar í 11.900 eftir 20. janúar. Skráning hér:
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Fyrirtæki og samfélagið: Sameiginlegur ávinningur“, Náttúran.is: Jan. 19, 2014 URL: http://nature.is/d/2014/01/19/fyrirtaeki-og-samfelagid-sameiginlegur-avinningur/ [Skoðað:Dec. 11, 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.