Ferðamálastofa auglýsir eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2013. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða aðilum sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.

Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar?

Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta, geta komið til greina. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki eða félagasamtök.

Hvernig er tilnefnt?

Aðilar geta tilnefnt hvort sem er sjálfa sig eða önnur fyrirtæki/félög. Tilnefningar sendist á skrifstofu Ferðamálastofu, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík, merktar Umhverfisverðlaun eða með tölvupósti á umhverfisstjóra stofnunarinnar, Björn Jóhannsson, á netfangið bjorn@ferdamalastofa.is fyrir 1. febrúar næstkomandi.

Skjal til útfyllingar

Hér að neðan er skjal með spurningum og atriðum sem þurfa að vera í lagi þegar ferðaþjónustuaðilar eru tilnefndir.

Birt:
18. janúar 2014
Höfundur:
Ferðamálastofa
Tilvitnun:
Ferðamálastofa „Ferðamálastofa óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna“, Náttúran.is: 18. janúar 2014 URL: http://nature.is/d/2014/01/17/ferdamalastofa-oskar-eftir-tilnefningum-til-umhver/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 17. janúar 2014

Skilaboð: