gönguferðFarið verður í gönguferð laugardaginn 26. október um Hengilssvæðið með Ferðafélagi Íslands og Landvernd.

Ekið verður upp á Hellisheiði og að Skarðsmýrarfjalli. Ef færð leyfir verður ekið upp á fjallið að vestanverðu. Gengið verður austur eftir fjallinu og niður af því um stórt misgengi niður í Þrengsli norðan við fjallið. Þaðan verður gengið niður í Miðdal og skoðaður jarðhiti sem þar er. Síðan verður gengið meðfram Skarðsmýrarfjalli að borholum sunnan fjallsins þar sem rútan mun bíða okkar.

Lagt er af stað frá Mörkinni 6 kl. 10:00. Verð er krónur 3000,- fyrir félagsmenn í FÍ og Landvernd, en krónur 4000,- fyrir aðra. Innifalið er rúta og fararstjórn. Leiðsögumaður er Einar Gunnlaugsson og fararstjóri Rannveig Magnúsdóttir. Gangan tekur 3-4 klst. og er auðveld og hentar öllum aldurshópum.
Hafið samband við Ferðafélag Íslands í gegnum tölvupóstfangið fi@fi.is eða í síma 568-2533 til að skrá þátttöku í ferðina.

Birt:
25. október 2013
Höfundur:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Dagsferð um Hengilssvæðið“, Náttúran.is: 25. október 2013 URL: http://nature.is/d/2013/10/25/dagsferd-um-hengilssvaedid/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: