Samráðsvettvangur um stefnu í úrgangsstjórnun skipaður
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað samráðsvettvang um mótun stefnu í úrgangsstjórnun. Vettvangnum er ætlað að efla samstarf á sviði úrgangsstjórnunar og stuðla að virku samráði við hagsmunaaðila við mótun stefnu í úrgangsstjórnun.
Með samramráðsvettvangnum gefst tækifæri til að ræða úrgangsstjórnun í víðu samhengi og velta upp hugmyndum og tillögum sem nýtast við frekari stefnumótun af hálfu ráðuneytisins á þessu sviði. Gert er ráð fyrir að m.a. verði rætt um landsáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir tímabilið 2013-2024, sem gefin var út í apríl sl. og hvernig tillögum sem þar koma fram verði best fylgt eftir. Jafnframt er gert ráð fyrir að fjallað verði um önnur tilfallandi atriði í úrgangsstjórnun.
Í landsáætluninni eru sett fram tímasett markmið sem öll miða að því að bæta nýtingu auðlinda og lágmarka þau neikvæðu áhrif sem myndun og meðhöndlun úrgangs hefur á umhverfið og heilsu manna. Í áætluninni er lögð áhersla á að ævinlega þurfi að skoða úrgangsmál í víðu samhengi, enda ræðst úrgangsmyndunin öðru fremur af neyslu einstaklinga, heimila og fyrirtækja. Þetta kallar á að beitt sé lífsferilshugsun í allri stefnumótun og ákvarðanatöku um úrgangsmál, jafnt á vettvangi ríkis og sveitarfélaga.
Auk fulltrúa ráðuneytisins er samráðsvettvangurinn skipaður fulltrúum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Úrvinnslusjóði, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, Neytendasamtökunum, Samtökum verslunar og þjónustu, Fenúr, Umhverfisstofnun og Samtökum iðnaðarins.
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Samráðsvettvangur um stefnu í úrgangsstjórnun skipaður “, Náttúran.is: 15. október 2013 URL: http://nature.is/d/2013/10/15/samradsvettvangur-um-stefnu-i-urgangsstjornun-skip/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 16. október 2013