Dagskrá Landverndar með fræðslu og gönguferðum í fallegu umhverfi Alviðru sumarið 2013. Þátttaka ókeypis.

miðvikudagur 3. júlí

Ganga upp á Ingólfsfjall. Krefjandi ganga upp á Ingólfsfjall frá Alviðru, með glæsilegu útsýni yfir Suðurland. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur sér um leiðsögn. Farið af stað frá Alviðru klukkan 17. Tekur 3 klst.

laugardagur 6. júli

Grasnytjar í Alviðru. Fræðsla og útivera í fögru umhverfi Alviðru fyrir alla fjölskylduna. Við lærum að þekkja nokkrar algengar íslenskar jurtir sem um aldir hafa verið nýttar í te, seyði, sem krydd og til matargerðar. Steinn Kárason annast dagskrána. Hefst klukkan 13. Tekur 2 til 3 klst.

miðvikudagur 10. júlí

Ganga um Öndverðarnes. Létt ganga í fallegu umhverfi Sogsins. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur sér um leiðsögn. Farið af stað frá Alviðru klukkan 17. Tekur 2 klst.

laugardagur 17. ágúst

Alviðrudagur. Náttúrufræðsla fyrir alla fjölskylduna á opnum degi í Alviðru. Hrefna Sigurjónsdóttir og Helena Óladóttir annast dagskrána.

 

Birt:
25. júní 2013
Höfundur:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Dagskrá Alviðru sumarið 2013“, Náttúran.is: 25. júní 2013 URL: http://nature.is/d/2013/06/25/dagskra-alvidru-sumarid-2013/ [Skoðað:22. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 26. júní 2013

Skilaboð: