Um þróun markaða fyrir hvalkjöt í Japan
Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands fjallar í dag um þróun markaða fyrir hvalkjöt í Japan:
Bent hefur verið á að sala hvalkjöts í Japan hafi verið dræm undan farin ár. Árið 2012 skiptist salan með eftifarandi hætti:
Heildarsala hvalkjöts í Japan 2012 3350,7 tonn 100%
Afurðir vegna vísindaveiða Japana 2472,4 - 74%
Afurðir hvals hf. frá 2009 eða 2010 878,3 - 26%
Áætlað magn afurða Hvals hf. árið 2013 (154 dýr) 1850,0 - aukning um 210%
Í upphafi þessa árs voru birgðir hvalkjöts 4700 tonn eða 1,4 sinnum það magn sem seldist í fyrra.
Línurit yfir þróun 10 helstu markaða fyrir hvalkjöt í Japan frá árinu 1974:
Fátt bendir til að Eyjólfur muni hressast.
Miðað við að heildarsalan var 3550,7 tonn í fyrra verður að teljast harla hæpið að Kristjáni Loftssyni takist að selja 1850 tonn af hvalaafurðum í Japan á einu ári - fyrir næstu vertíð 2014 - sem er aukning um 210%. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er „... hluti aflans frá vertíðunum 2009-10 er enn óseldur og geymdur í frystigeymslum þar í landi."
Erftitt er að segja til um hverjir hagsmunir Kristjáns Loftssonar eru í þessu máli. Á hinn bóginn hafa áhugamál hans ekkert með hagsmuni Íslands að gera. Er ekki tími til kominn að stjórnvöld tali um fyrir manninum? Bendi honum á að nú sé nóg komið.
Birt:
Tilvitnun:
Árni Finnsson „Um þróun markaða fyrir hvalkjöt í Japan“, Náttúran.is: 18. júní 2013 URL: http://nature.is/d/2013/06/18/um-throun-markada-fyrir-hvalkjot-i-japan/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.