Hvað eru Paraben?
Paraben eru efni sem notuð eru mikið í snyrtivörum og einnig í matvælum sem rotvarnarefni og finnast því í mjög mörgum vörum. Þar má nefna sjampó, rakakrem, raksápur, sleipuefni, tannkrem. Mjög margar af þeim vörum sem við notum dags daglega innihalda paraben. Paraben efnin eru auðveld og ódýr í framleiðslu og því mikið notuð.

Af hverju er Paraben slæm?
Ýmsar rannsóknir hafa verið gerðar á parabenum og benda sumar til þess að paraben séu skaðleg en aðrar hafa ekki sýnt fram á nein áhrif. Það eru því skiptar meiningar um skaðsemi parabena en við leggjum það í hendur lesenda að meta fyrir sig hvort þeir vilja forðast paraben. Paraben geta komið í stað hormónsins estrógen í líkamanum og geta því haft margvísleg hormónaáhrif

Paraben hafa fundist í brjóstakrabbameini og vitað er að estrógen hefur áhrif á þróun brjóstakrabbameins. Einnig eru paraben talin geta átt sinn þátt í því að ungar stúlkur byrji sífellt fyrr á kynþroskaskeiðinu. Japönsk rannsókn frá árinu 2002 (e. dr. S Oishi) sýndi fram á að nýfædd karlkyns spendýr sem komust í snertingu við efnið butylparaben urðu fyrir truflunum á losun hormónsins testosteron og höfðu þar af leiðandi talsverðan áhrif á æxlunarfæri þeirra.

Þau paraben efni sem algengust eru í vörum eru probyl-, methyl-, buthyl- og ethylparaben en í raun eru það öll efni sem hafa heiti sem endar á paraben. Vegna þess hve margir sniðganga vörur með parabenum eru sumir framleiðendur farnir að merkja vörur "paraben free" sem ekki innihalda paraben.

Sjá nánar um paraben á Wikipediu.

Birt:
17. apríl 2013
Höfundur:
NLFÍ
Tilvitnun:
NLFÍ „Hvað eru paraben og af hverju eru þau skaðleg?“, Náttúran.is: 17. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2013/04/17/hvad-eru-paraben-og-af-hverju-eru-thau-skadleg/ [Skoðað:23. nóvember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: