Náttúrunni hefur borist stefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í umhverfis- og atvinnumálum - bæði það sem hefur verið gert á kjörtímabilinu og það sem mun verða gert fái hreyfingin umboð kjósenda. Önnur framboð eru hvött til að senda okkur sína stefnu í umhverfismálum og verða þær þá birtar hér á vef Náttúrunnar.

Hér að neðan er að finna áherslupunktana sem kynntir voru á fundinum.

Grænt – opið - fjölbreytt

  • Grænna Ísland
  • Mestu umbætur á sviði umhverfismála á einu kjörtímabili.
  • Stefna Vinstri grænna orðin meginstef, þverpólitísk sátt að skapast um málefni sem VG kom á dagskrá.
  • Sjálfbær þróun
  • Skapandi greinar
  • Varúð við jarðvarmavirkjanir

Margt gert á kjörtímabilinu:

  • Rammaáætlun samþykkt.
  • Bætt staða náttúruverndar og ný náttúruverndarlög.
  • Árósarsamningurinn fullgiltur og almenningi hleypt að.
  • Ísland tekur ábyrgð í loftslagsmálum.
  • Efling almenningssamgangna um allt land.
  • Efling græna hagkerfisins með áherslu á fjölbreytt og grænt atvinnulíf
  • Kortlagning skapandi greina.

Náttúruperlur fyrir komandi kynslóðir!

  • Ný nálgun á atvinnumál
  • Sjálfbær þróun í atvinnuuppbyggingu, stöðugan og jafnan vöxt til langs tíma.
  • Almannahagsmunir ráði alltaf för.
  • Atvinnumál snúast ekki um stórar lausnir.
  • Áhersla á litla og meðalstóra atvinnustarfsemi.
  • Áhersla á nýsköpun, þekkingariðnað, skapandi greinar og ferðaþjónustu.

Eitthvað annað - og betra

  • Skapandi greinar eru grunnstoð í atvinnulífinu sem standa undir hátt í 10 þúsund ársverkum. Þær velta tæpum 200 milljörðum á ári, eða jafnmiklu og áliðnaður. Þessi ríkisstjórn var fyrst til að greina umfang þessa geira og móta stefnu um hann.
  • Vöxtur í nýsköpun hefur verið meiri á undanförnum árum en áður. Ný lög um endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar nýsköpunarfyrirtækja auka ein og sér stuðning við nýsköpun um vel á annan milljarð krónaárið 2013.
  • Þjóðin njóti arðs af auðlindum, veiðigjöld skila arði af sjávarauðlindinni til þjóðarinnar. Sama þarf með orkuauðlindir. Tryggja þarf þjóðareign í stjórnarskrá.

Græn uppbygging

  • Framkvæmdasjóði ferðamannastaða komið á, til að byggja upp þau svæði sem ferðamenn sækja mest í.
  • Fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar tryggir nærri milljarð í uppbyggingu ferðamannastaða og innviði friðlýstra svæða árið 2013.
  • Grænn fjárfestingasjóður hefur starfsemi á árinu 2013 með 500 milljón króna stofnframlagi. Aðrar 500 milljónir eiga að bætast við 2014.
  • Stóraukin áhersla á og stuðningur við skapandi greinar.

Ísland tekur ábyrgð í loftslagsmálum

  • Losun stóriðjunnar sett í samevrópskt viðskiptakerfi. Ekkert séríslenskt ákvæði, takk!
  • Metnaðarfull áætlun um losunarmarkmið samþykkt 2010, gengur vel að uppfylla.
  • 350 milljónir í eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu sem á að hækka í 1.000 milljónir á ári frá 2013 til 2022.
  • Sköttum og bifreiðagjöldum breytt til að skapa efnahagslega hvata fyrir vistvænni kosti.

Lýðræðisleg þátttaka

  • Árósasamningur fullgiltur, tryggir aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum
  • Almenningi hleypt að rammaáætlun og hlustað á athugasemdirnar
  • Ný náttúruverndarlög byggja á hvítbók og meira samráði en dæmi eru um
  • Gögn Landmælinga gerð gjaldfrjáls. Grunngögn í almannaþágu.

Grænna, opnara, fjölbreyttara – áherslur til framtíðar

  • Bætum rekstrarskilyrði sprotafyrirtækja, undanþiggjum þau tryggingargjaldi þar til launakostnaður nær ákveðnu marki.
  • Gerum lífeyrissjóðum kleift að fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum með því að rýmka fjárfestingarheimildir.
  • Höldum áfram að opna gögn í eigu ríkisins og fjárhagsupplýsingar þess. Búum þannig til jarðveg fyrir nýsköpun og nauðsynlegt aðhald.
  • Rannsökum umhverfisáhrif stóraukinnar ferðamennsku og bregðumst við svo náttúra landsins glati ekki gildi sínu.
  • Eflum vistheimt, með áherslu á að stöðva uppblástur, vernda og endurheimta jarðveg, votlendi og gróður.
  • Stuðlum að meiri endurvinnslu og minni neyslu.
  • Höldum áfram sókn í þágu hjólreiða og almenningssamgangna.
  • Mikilvægt er að ljúka friðlýsingu þeirra 20 landsvæða sem féllu í verndarflokk rammaáætlunar.
  • Ferðamönnum hefur fjölgað ört undanfarin ár. Til að ágangur ferðamanna valdi ekki náttúruspjöllum þarf að efla rannsóknir á þolmörkum ferðamannastaða. Þá er mikilvægt að leggja áfram rækt við nýsköpun í ferðamennsku til að dreifa straumnum á fleiri svæði og önnur tímabil.

Leið Ísland út úr kreppunni er græn, opin og fjölbreytt. Hún er í anda sjálfbærrar þróunar. Almannahagsmunir hafa ráðið og eiga að ráða för. Þannig tryggjum við góðkynja hagvöxt, okkur sjálfum og komandi kynslóðum til góða. Núna er tækifæri til að halda áfram á sömu braut og byggja upp fjölbreytt atvinnulíf í stað þess að reiða sig á risalausnir. Nýtum það!

Ljósmynd: Hjálparfoss, Árni Tryggvason.

Birt:
16. apríl 2013
Tilvitnun:
Vinstirhreyfingin grænt framboð „X13 - Áherslur VG í umhverfismálum og stefna til framtíðar“, Náttúran.is: 16. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2013/04/16/x13-aherslur-vg-i-umhverfismalum-og-stefna-til-fra/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: