Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðgarðsmiðstöð fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul í gær á Hellissandi. Þá setti ráðherra málþing um framtíð Þjóðgarðsins í kjölfarið.

Þjóðgarðurinn var stofnaður árið 2001 og fimm árum síðar var efnt til opinnar samkeppni um þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Hönnun hefur því legið fyrir um nokkurt skeið og er byggingunni ætlað að uppfylla allar þarfir þjóðgarðsmiðstöðvar, bæði hvað varðar upplýsingagjöf, þjónustu og fræðslu til gesta, auk starfsaðstöðu fyrir rekstur þjóðgarðsins sjálfs. 

Meðal viðstaddra voru Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, Sædís Heiðarsdóttir, sem aðstoðaði ráðherra við skóflustunguna, Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar og Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Við athöfnina sagði ráðherra að með byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar yrðu innviðir þjóðgarðsins Snæfellsjökuls styrktir, þetta yrði lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á svæðinu og að með henni yrði þjóðgarðurinn betur í stakk búinn til að taka á móti ferðamönnum sem heimsækja svæðið allt árið um kring. 

Sædís Heiðarsdóttir aðstoðaði ráðherra við skóflustunguna.Yfirskrift málþingsins sem haldið var í Röst á Hellissandi í kjölfar skóflustungunnar var „Þjóðgarður á leið til framtíðar“ en auk ráðherra tóku þar til máls, Kristinn Jónasson, bæjastjóri Snæfellsbæjar, Sturla Böðvarsson, bæjastjóri Stykkishólms, Ragnhildur Sigurðardóttir, Svæðisgarðinum Snæfellsnesi, Kristín Huld Sigurðardóttir, Minjastofnun, Jón Björnsson, þjóðgarðsvörður og Sæmundur Kristjánsson, sagnaþulur og svæðisleiðsögumaður.

Í ávarpi sínu beindi ráðherra sjónum að fjölbreyttri náttúru og menningarminjum á Snæfellsnesi, mikilvægi þessa að vernda og tryggja sjálfbæra nýtingu jafnframt því að draga fram að þjóðgarðssvæðið byði upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og ferðaþjónustu. „Það er brýnt að huga tímanlega vel að skipulagi til að dreifa ferðamannastraumnum með spennandi ferðamannaleiðum og byggja upp nauðsynlega innviði til verndar náttúrunni,“ sagði ráðherra.

Birt:
14. ágúst 2016
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Skóflustunga tekin að þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi“, Náttúran.is: 14. ágúst 2016 URL: http://nature.is/d/2016/08/14/skoflustunga-tekin-ad-thjodgardsmidstod-hellissand/ [Skoðað:22. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: