Landvernd hefur sent verkefnisstjórn rammaáætlunar athugasemdir sínar vegna tillögu að flokkun virkjunarhugmynda í 3. áfanga áætlunarinnar. Landvernd leggur ríka áherslu á nauðsyn þess að hægja verulega á eða stöðva uppbyggingu frekari stórvirkjana hérlendis, a.m.k. þar til fyrir liggur ígrunduð orkustefna sem m.a. tiltekur hvað megi virkja mikið á næstu árum / áratugum, hvenær réttlætanlegt er að ráðast í stórvirkjun (t.d. við hvaða efnahagsskilyrði og arðsemismörk), í hvað nota skuli orkuna og hvaða lágmarksarð skuli greiða af orkuauðlindum. Þar til þetta liggur fyrir eru engar forsendur til að flokka svo margar virkjunarhugmyndir í orkunýtingarflokk og tillaga verkefnisstjórnar gerir ráð fyrir

Landvernd fagnar því að þremur stórum vatnasviðum, Héraðsvötnunum í Skagafirði, Skaftá og Skjálfandafljóti, er raðað í verndarflokk. Landvernd telur þó að fleiri svæði en drög verkefnisstjórnar gera ráð fyrir beri að setja í verndarflokk, ekki síst vatnasvið Hólmsár sem hlaut fjórða hæsta verðmætamatið í röðun faghópa. Vatnasvið Hvítár og jarðhitasvæðin á Krýsuvíkursvæðinu og í nágrenni Hengladala hljóta líka verðmætamatseinkunn yfir meðalgildi, en raðast samt ýmis í biðflokk eða nýtingarflokk. Landvernd telur að leiðrétta þurfi flokkun þessara svæða.

Það er mat Landverndar að sérstakt verðmæti (ómetanleiki) sé fólgið í verndun miðhálendis Íslands og möguleikum á stofnun þjóðgarðs. Þá séu ríkir almannahagsmunir fólgnir í verndun svæðisins með vísan til náttúruverndarlaga. Það sama gildi um Reykjanesfólkvang og mögulegt verndarsvæði í Hengladölum. Að mati Landverndar þarf að taka aukið tillit til þessara þátta við röðun verkefnisstjórnar og setja virkjunarhugmyndir á þessum svæðum í verndarflokk rammaáætlunar.

Landvernd leggur því sérstaka áherslu á að allar virkjunarhugmyndir inn á miðhálendi Íslands fari í verndarflokk og þar verði stofnaður þjóðgarður. Ekki var búið að stofna nefnd umhverfis- og auðlindaráðherra sem ætlað er að kanna forsendur fyrir þjóðgarði á svæðinu þegar verkefnisstjórn lauk við skýrsludrög sín þann 11. maí sl. Ljóst er að þetta breytir forsendum röðunar allra virkjunarhugmynda á hálendinu og ættu þær hið minnsta að fara í biðflokk meðan þjóðgarður á svæðinu er til skoðunar. 

Landvernd gerir verulegar athugasemdir við flokkun virkjunarhugmynda á Reykjanesskaga, en með drögum verkefnisstjórnar eru langflest svæði þar komin í nýtingarflokk. Allt eru þetta jarðvarmavirkjanir, en óvissa ríkir m.a. um sjálfbærni slíkra virkjana og langtíma heilsufarsleg áhrif brennisteinsvetnis. Nýleg doktorsritgerð hérlendis bendir til þess að þau áhrif gætu verið alvarlegri en áður var vitað. Þá er svæðið, ekki síst Reykjanesfólkvangur, vinsælt útivistarsvæði í næsta nágrenni stærsta þéttbýlissvæðis á Íslandi og á Reykjanesskaga má finna óbyggð víðerni sem er afar sérstætt í svo miklu návígi við þéttbýlt höfuðborgarsvæðið.

Landvernd gerir athugasemdir við flokkun Urriðafossvirkjunar og Holtavirkjunar í neðrihluta Þjórsár í orkunýtingarflokk, en að mati samtakanna skortir rannsóknir á samfélagslegum áhrifum þeirra og enn er mikil óvissa um áhrif þeirra á hinn stóra laxastofn sem í ánni finnst.

Landvernd gerir einnig alvarlega athugasemd við röðun Austurgilsvirkjunar í nýtingarflokk án þess að verðmætamat hafi farið fram á henni. Þrátt fyrir að verkefnisstjórn taki fram að flokkun virkjunarhugmyndarinnar sé gerð með fyrirvara um verðmætamat, telur Landvernd hana ekki hafa forsendur til að flokka hugmyndina með þessum hætti og að þar sé í raun um skýrt brot á verklagi að ræða. Austurgilsvirkjun og Hvalárvirkjun munu hafa mikil neikvæð áhrif á víðerni, vatnafar og ásýnd lands og eyðibyggða á austanverðum Vestfjörðum.

Umsögn Landverndar má finna hér að neðan.

http://landvernd.is/Portals/0/DigArticle/7211/Umsogn%20Landverndar_drog%20ad%20skyrslu%20verkefnisstjornar%20RA%203%20afangi_3ágúst2016_LOKA.pdf

Birt:
5. ágúst 2016
Höfundur:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Fleiri virkjunarhugmyndir í verndarflokk“, Náttúran.is: 5. ágúst 2016 URL: http://nature.is/d/2016/08/05/fleiri-virkjunarhugmyndir-i-verndarflokk/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: