Lóan er komin að kveða burt snjóinn
Lóa sást á vappi við Garðskagavita fyrir hádegi í dag. Hún er örlítið seinni á ferðinni en í fyrra sást fyrsta lóan þ. 12. mars en að meðalkomutími hennar sl. tvo áratugi er þ. 23. mars.
Lóan hefur lengi verið okkar helsti vorboði. Sagt er í þekktu ljóði að hún komi og kveði burt snjóinn og leiðindin en lóan hefur oft verið yrkisefni skálda. Lóan er algengur varpfugl hér á landi og er stofn hennar sterkur. Hún er farfugl og sjást fyrstu lóurnar oftast í lok mars eða byrjun apríl. Hún heldur sig að fyrstu við ósar og ár en kjörlendi lóunnar eru móar og melir þar sem hún verpir. Sagt er að hegðun lóunnar geti sagt til um veður.
Birt:
26. mars 2016
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Lóan er komin að kveða burt snjóinn“, Náttúran.is: 26. mars 2016 URL: http://nature.is/d/2016/03/26/loana-er-komin-ad-kveda-burt-snjoinn/ [Skoðað:30. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.