Saman gegn sóun
Umhverfis- og auðlindaráðherra býður til morgunarverðarfundar fimmtudaginn 17. mars undir yfirskriftinni Saman gegn sóun.
Á fundinum verður stefna ráðherra um úrgangsforvarnir, Saman gegn sóun, kynnt ásamt námsefni um úrgangforvarnir.
Matarsóun verður í forgangi fyrstu tvö ár stefnunnar og verða ýmsar aðgerðir á því sviði kynntar á fundinum, m.a. ný vefgátt um matarsóun og nýtt kerfi strikamerkja sem stuðlað getur að minni sóun.
Fundurinn verður haldinn á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, frá kl. 8.30-10:00 og verður boðið upp á morgunverð.
Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda tölvupóst til thorunn.elfa@uar.is
-
Morgunverðarfundur - Saman gegn sóun
- Staðsetning
- None Túngata 14
- Hefst
- Fimmtudagur 17. mars 2016 08:30
- Lýkur
- Fimmtudagur 17. mars 2016 10:00
Tengdir viðburðir
Birt:
15. mars 2016
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Saman gegn sóun“, Náttúran.is: 15. mars 2016 URL: http://nature.is/d/2016/03/15/saman-gegn-soun/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.