Við Breiðafjörð. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Landsbankinn stendur fyrir fundi  um Parísarsamkomulagið í loftslagsmálum í Norðurljósasal Hörpu fimmtudaginn 25. febrúar kl. 8.30-12.00. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8.00

Markmið fundarins er að varpa ljósi á margvísleg áhrif sem aðgerðir gegn loftslagsbreytingum kunna að hafa á íslenskt atvinnulíf og fjárfestingar.

Í desember sl. var nýtt samkomulag í loftslagsmálum samþykkt í París. Í Parísarsamkomulaginu er í fyrsta sinn kveðið á um að öll ríki skuli bregðast við til þess að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda, takast á við afleiðingar loftlagsbreytinga og tryggja umtalsvert fjármagn til grænna lausna og aðstoð við ríki sem verða verst úti í breytingum.

Dagskrá fundar

  • Hagfræðideild Landsbankans kynnir nýja greiningu bankans á hlutverki fjármálageirans í loftslagsmálum.
  • Halldór Björnsson hjá Veðurstofu Íslands ræðir og hrekur ýmsar mýtur, rangfærslur og samsæriskenningar sem reglulega koma upp í umræðunni um loftslagsbreytingar af mannavöldum.
  • Brynhildur Davíðsdóttir prófessor í umhverfis-og auðlindafræði við Háskóla Íslands mun fjalla um mögulegar aðgerðir sem stærstu atvinnugreinar landsins geta beitt til að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.
  • Björgvin Skúli Sigurðsson framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar, fjallar um raforkuframleiðslu á Íslandi með tilliti til loftslagsmála, áskoranir og tækifæri til nýsköpunar.
  • Asbjørn Torvanger sérfræðingur um loftslagsfjármál hjá Miðstöð alþjóðlegra loftslags-og  umhverfisrannsókna (CICEIRO) í Ósló fjallar m.a um skilyrði sem fyrirtæki þurfa að uppfylla við útgáfu grænna skuldabréfa.
  • Jeanett Bergan hjá norska trygginga-og lífeyrissjóðnum Kommunal Landspensjonskasse Gjensidig Forsikringsselskap (KLP) mun fjalla um fjárfestingaákvarðanir með tilliti til aðgerða í loftslagsmálum.

Fundarstjóri er Ketill Berg Magnússon framkvæmdastjóri Festu - miðstöðvar um samfélagsábyrgð.

Skráning á fundinn.


Birt:
23. febrúar 2016
Höfundur:
Landsbankinn
Tilvitnun:
Landsbankinn „Hvaða áhrif hefur Parísarsamkomulagið á atvinnulífið?“, Náttúran.is: 23. febrúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/02/23/hvada-ahrif-hefur-parisarsamkomulagid-atvinnulifid/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: