Dynkur í Þjórsá. Ljósm. Árni Tryggvason.Landvernd gagnrýnir harðlega málsmeðferð og ákveðin efnisatriði í drögum að breytingum á starfsreglum verkefnisstjórnar rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða, sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsti til umsagnar í byrjun febrúar.

Telur Landvernd málsmeðferðina ekki standast lög og aðkomu Landsvirkjunar að gerð draganna hingað til óeðlilega og óásættanlega, enda endurspegla drögin kröfur Landsvirkjunar. Vísað er til bréfaskifta og fundar Landsvirkjunar og umhverfis- og auðlindaráðuneytis og aðkomu Landsvirkjunar að drögunum á fyrri stigum, í gegnum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, að því er virðist án vitneskju umhverfisráðuneytis.

Á sama tíma hafa aðrir ekki átt kost á þátttöku í samningu draganna fyrr en í almennri kynningu þeirra, þ.m.t. önnur orkufyrirtæki, ferðaþjónustan, útivistarhópar og náttúruverndarsamtök. Landvernd gagnrýnir sérstaklega tvö efnisatriði: Ákvæði um yfirstjórn umhverfisráðherra sem opnar á möguleika á pólitískum afskiptum ráðherra og ákvæði sem gera mun orkufyrirtækjum kleyft að fá virkjunarhugmyndir í gildandi verndarflokki rammaáætlunar teknar upp aftur og aftur í rammaáætlun, hugmyndir sem eru á svæðum sem Alþingi er búið að ákveða að beri að friðlýsa. Í báðum tilvikum er stórlega vegið að faglegu sjálfstæði verkefnisstjórnar og sátt um rammaáætlun.

Landvernd leggur til að ákvæði um að umhverfisráðherra fari í framtíðinni með yfirstjórn verkefnisstjórnar og faghópa, sem Landsvirkjun lagði til í bréfi til atvinnuvegaráðuneytis 28. janúar, verði tekið út. Tillagan vegur að faglegu sjálfstæði rammaáætlunar og opnar á pólitísk afskipti ráðherra. Að mati Landverndar er það alls ekki við hæfi eða í samræmi við anda laganna að ráðherra hafi hér stjórnunarvald yfir faglegri nefnd sem er honum sjálfum til ráðgjafar.  

Landvernd gagnrýnir einnig harðlega ákvæði um endurmat virkjunarhugmynda og landsvæða sem þegar er búið að flokka í verndar- eða orkunýtingarflokk gildandi rammaáætlunar. Með nýju ákvæði yrði nægjanlegt fyrir orkufyrirtæki að breyta virkjunarhugmynd, t.d. í verndarflokki, lítilsháttar til að verkefnisstjórn yrði að taka hana og landsvæðið sem hún er á upp til endurmats. Lögin eru skýr um faglegt sjálfstæði verkefnisstjórnar þegar kemur að slíkum málum, en breytingar á starfsreglunum myndi afnema þetta sjálfstæði. Landvernd telur það ekki standast lög. Ljóst má vera að sterk rök þarf til þess að endurflokka virkjunarhugmyndir í verndarflokki þar sem rík verndarsjónarmið liggja að baki slíkri flokkun. Af lögunum verður ekki annað séð en slík heimild sé undantekning. Mikilvægt er að faglegt sjálfstæði verkefnisstjórnar sé virt þegar kemur að endurmati. 

Landvernd krefst þess að hlutverk og verksvið Orkustofnunar annarsvegar og verkefnisstjórnar rammaáætlunar hinsvegar, endurspegli lögin um rammaáætlun. Hlutverk Orkustofnunar er afmarkað skv. rammaáætlunarlögunum, en það felst í að taka við beiðnum orkufyrirtækja um mat á hugsanlegum orkunýtingarkostum og undirbúa fyrir verkefnisstjórnina, sem undirstofnun ráðuneytis orkumála. Orkustofnun kemur hinsvegar ekki á neinn hátt að ákvörðunum um endurmat skv. 3. mgr. 9. gr. rammaáætlunarlaganna. Hún getur á hinn bóginn, líkt og hver annar lögaðili eða einstaklingur, lagt inn beiðni um endurskoðun til verkefnisstjórnarinnar. Þetta afmarkaða hlutverk Orkustofnunar er einnig endurspeglað í reglugerð um virkjunarkosti í verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 530/2014, frá 5. júní 2014.

Gefi ráðherra umhverfismála tillögurnar óbreyttar út, er rammaáætlun í algjöru uppnámi. Með breytingunum yrði hægt að setja virkjanahugmyndir á landsvæðum í verndarflokki áætlunarinnar aftur og aftur í mat þrátt fyrir að Alþingi hafi ákveðið friðun þeirra. Það eina sem gæti þá bjargað þessum náttúruperlum er að umhverfisráðuneytið friðlýsi þær, en hvorki hefur fjármagni verið veitt í eða vinna verið unnin til undirbúnings þess síðastliðin tvö ár. 

Þar sem ekki hefur verið fylgt málsmeðferðarreglum er lög mæla fyrir um, leggur Landvernd til að ráðuneyti umhverfismála sendi drögin og þær umsagnir sem um þau berast til verkefnisstjórnar rammaáætlunar, sem leggi í framhaldinu fram tillögur til ráðuneytisins um nýjar starfsreglur, líkt og lög kveða á um. Verkefnisstjórnin getur þannig metið gildandi starfsreglur, drög ráðuneytisins og umsagnir sem um þau berast sjálfstætt. Tillögur verkefnisstjórnar færu svo á ný í almenna kynningu.

Birt:
23. febrúar 2016
Höfundur:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Athugasemdir Landverndar um drög að breytingum á starfsreglum verkefnisstjórnar rammaáætlunar.“, Náttúran.is: 23. febrúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/02/23/athugasemdir-landverndar-um-drog-ad-breytingum-sta/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 24. febrúar 2016

Skilaboð: