Þriðjudaginn 2. júni frá kl. 9:00 - 10:30 verður haldinn fundur á vegum Náttúruverndarsamtaka Íslands, franska sendiráðsins, Evrópustofu og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.

Á fundinum verður fjallað um áhrif loftslagsbreytinga á vistkerfi sjávar, súrnun hafsins, breytta fiskigengd í hafinu og áhrifin á Ísland. Í hverju felst barátta alþjóðlegra náttúrverndarsamtaka og í hverju felast aðgerðir Evrópusambandsins í baráttunni?

Auk þess verður rætt um helstu áherslumálin á COP 21 loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París.

Frummælendur:

  • Kelly Rigg – stofnandi og framkvæmdastjóri Varda Group, alþjóðlegra ráðgjafafyrirtækis á sviði umhverfisverndar.
  • Attilio Gambardella – sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á sviði loftslagsaðgerða.
  • Haukur Þór Hauksson – aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
  • Philippe O´Quin – sendiherra Frakklands á Íslandi.

Fundarstjóri: Guðmundur Ingi Guðbrandsson – framkvæmdastjóri Landverndar.

Boðið verður upp á knaffiveitingar frá 8:30 – 9:00.

Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir.

Alþjóðamálastofnun á Facebook.

Evrópustofa á Facebook.

Náttúruverndarsamtök Íslands.

Franska sendiráðið á facebook


Birt:
31. maí 2015
Höfundur:
Árni Finnsson
Tilvitnun:
Árni Finnsson „Áhrif loftslagsbreytinga á lífríki sjávar“, Náttúran.is: 31. maí 2015 URL: http://nature.is/d/2015/05/31/ahrif-loftslagsbreytinga-lifriki-sjavar/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: