Landvernd og áhugafólk um sjálfbæra þróun, með stuðningi ASÍ og BSRB, boða til fundar um auðlindir Íslands, nýtingu þeirra, eignarhald og skiptingu auðlindaarðsins þann 11. apríl frá kl. 13:00 - 16:00 á Hótel Sögu (Hekla).

Dagskrá:

Guðmundur Hörður Guðmundsson formaður Landverndar býður gesti velkomna.

Fundarstjórar: Þórarinn Eyfjörð og Stefán Jón Hafstein. Boðið verður upp á fyrirspurnir úr sal.

Hve mikils virði eru auðlindir í almannaeigu? Sigurður Jóhannesson hagfræðingur.
Viðskipti á markaði gefa hugmynd um verðmæti sumra þeirra auðlinda sem teljast vera í almannaeigu á Íslandi, en virði annarra er nánast óþekkt. Farið verður yfir það mat sem þekkt er og rætt um álitamál í því samhengi. Jafnframt verður rætt hvernig virða mætti þær auðlindir sem ekki hafa enn verið metnar til fjár.

Skilvirk auðlindastjórnun - hvernig samræmum við ólík hlutverk ríkisins? Daði Már Kristófersson auðlindahagfræðingur.
Ísland er eitt auðlindaríkasta land í heimi. Auðlindir liggja til grundvallar öllum megin útflutningsatvinnuvegum þjóðarinnar; auðlindir sjávar, orkuauðlindir og stórbrotin náttúra. Ríkið fer með stór og oft illsamræmanleg hlutverk sem reglunar-, eftirlits-, vöktunar-, framkvæmda- og nýtingaraðili sem og sem eigandi þessara auðlinda. Mikilvægt er að skilja milli hlutverka ef tryggja á að eðlilegt tillit sé tekið til ólíkra hagsmuna - sérstaklega að hagsmunir ríkisins sem eiganda auðlinda séu ekki fyrir borð bornir.

Hvers vegna er auðlindaákvæði í stjórnarskrá mikilvægt? Svanfríður Jónasdóttir fyrrverandi alþingismaður.
Tvær auðlindanefndir og stjórnlagaráð lögðu til að sett yrði ákvæði í sjtórnarskrá um þjóðareign á auðllindum. Mikill meirihluti þjóðarinnnar er því samþykkur. Í erindinu verður mikilvægi þessa lýst.
Stutt kaffihlé kl. 15:00

Auðlindir og spilling á Íslandi? Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur.
Í erindinu er gerður greinarmunur á spillingu, spillingarhvötum og spillingarhættum. Fjallað verður um birtingarmyndir spillingar samkvæmt hefðbundinni skilgreiningu á spillingu, spillingu í þeim skilningi sem nýlegar rannsóknir innan stjórnsýslu vestrænna ríkja hafa skilgreint og kalla “hina nýju tegund spillingar”. Varpað verður ljósi á þær aðstæður í vestrænum lýðræðisríkjum þar sem slík spilling fær þrifist og að lokum dregnar upp ýmsar birtingarmyndir spillingar á Íslandi í tengslum við opinbera umræðu og aðgerðir er lúta að nýtingu auðlinda þjóðarinar að meta þetta.

Arður af náttúruauðlindum, hver nýtur hans? Indriði H. Þorláksson, hagfræðingur og fyrrverandi ríkisskattstjóri.
Hvert rennur arður af þeim auðlindum sem nýttar eru í atvinnurekstri á Íslandi? Nýtur þjóðin sem eigandi auðlindanna arðs í samræmi við það.

Sjá viðburðinn á Facebook.

Birt:
4. apríl 2015
Höfundur:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Þjóðareign - málþing um auðlindir Íslands“, Náttúran.is: 4. apríl 2015 URL: http://nature.is/d/2015/04/04/thjodareign-malthing-um-audlindir-islands/ [Skoðað:21. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: