Samnýting sífellt vinsælli
Það verður sífellt vinsælla að lána, skipta og deila með öðrum í staðinn fyrir að eiga hlutina einn og sjálfur, ef marka má frétt sænska ríkissjónvarpsins SVT. Stöðin birti nýlega fréttainnskot frá sænska bænum Deje, en þar er starfræktur sérstakur tómstundabanki sem lánar út ýmiss konar tómstundabúnað til íbúa bæjarins, þeim að kostnaðarlausu. Íbúar gefa til bankans ýmsan búnað sem annars á það til að safnast upp í bílskúrum, svo sem skauta og skíði.
Samnýting af ýmsu tagi verður sífellt vinsælli og í löndum á borð við Svíþjóð, Holland, Bandaríkin og England hafa fatabankar, samkeyrsla, verkfærabankar og íbúðaskipti mjög rutt sér til rúms. Ýmis viðskiptatækifæri geta leynst í þessu samnýtingarhagkerfi (deilihagkerfi) eins og sjá má m.a. á skjótum uppgangi og ábatasömum rekstri vefsíðunnar Airbnb.
(Sjá frétt SVT).
Birt:
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Samnýting sífellt vinsælli“, Náttúran.is: 13. febrúar 2015 URL: http://nature.is/d/2015/02/13/samnyting-sifellt-vinsaelli/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.