10 Hraunavinir vilja 20 milljónir í bætur

Sýning um hantökurnar í Gálgahrauni sl. haust undir nýrri brú í Gálgaharuni. Ljósm Guðrún Tryggvadóttir.
Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, lögmaður Hraunavina, segir í samtali við fréttastofu í morgun að málin tíu séu keimlík. Mótmælendunum hafi verið gert að þola frelsissviptingu og ólögmætri handtöku.
Ragnheiður segir að fólkið hafi verið í fullum rétti til að mótmæla framkvæmdum á Álftanesi og að fyrirmælin sem lögregla gaf á sínum tíma hafi verið ólögmæt.
Hátt á annan tug mótmælenda voru handteknir í mótmælunum í október fyrir ári síðan. Níu þeirra voru nýverið dæmdir til sektargreiðslu í Héraðsdómi Reykjaness vegna mótmælanna.
Níumenningarnir hafa óskað eftir upplýsingum um hvort lögregla hafi tekið saman skýrslu vegna aðgerðanna. Í tilkynningu frá þeim kom fram að ekki færri en sextíu lögrelgumenn hafi verið á vettvangi í Gálgahrauni.
Birt:
8. nóvember 2014
Tilvitnun:
freyrgigja „10 Hraunavinir vilja 20 milljónir í bætur“, Náttúran.is: 8. nóvember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/11/08/10-hraunavinir-vilja-20-milljonir-i-baetur/ [Skoðað:13. mars 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.