Norræna ráðherranefndin gerir norræna loftslagsdaginn, 11. nóvember, að merkisdegi í ár. Þá verður nefnilega ýtt úr vör nýju og metnaðarfullu n22/09 2014

Loftslagsnámsefnið er ætlað til kennslu náttúruvísinda- og samfélagsgreina, en einn hluti þess er spennandi norræn skólasamkeppni um orkusparnað sem nefnist „Loftslagsáskorunin“.

„Með Loftslagsáskoruninni leggja Norðurlönd aukna áherslu á sjálfbærni með því að hvetja í senn til samstarfs og samkeppni í kennslu um orku- og umhverfismál í norrænum grunnskólum,“ segir framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, Dagfinn Høybråten, í tengslum við opnun vefgáttarinnar.

Norræna loftslagsáskorunin er tilboð til norrænna skóla um samstarf, sameiginlega fagþekkingu og menntun til að stuðla að sameiginlegri, grænni framtíð. Námsefnið er samið með hliðsjón af námsskrám Norðurlanda. Það er sveigjanlegt og lifandi og byggir á stafrænum námslausnum.

Námsefnið verður hluti af norrænu kennslugáttinni www.nordeniskolen.org. Í nóvember næstkomandi fagnar vefgáttin eins árs afmæli og þegar hafa meira en 1.400 kennarar frá öllum Norðurlöndum skráð sig.

Loftslagsáskorunin er hluti af stærra átaki á sviði græns hagvaxtar, sem forsætisráðherrar Norðurlanda hafa beðið Norrænu ráðherranefndina að hafa umsjón með. Nánari upplýsingar á www.nordicway.org
Ánægðir kennarar

Norrænir kennarar eru einn af mikilvægustu markhópum framtaksins, en í hópi þeirra ríkir mikil ánægja með námsefnið.

„Vefurinn „nordeniskolen.org“ er byggður upp á einfaldan og aðgengilegan hátt og þemun eru góð og breið. Nemendurnir geta fljótt fundið það sem þeir þurfa og á undirsíðum vefsins er gnægtarhorn verkefna og kennsluhugmynda til kennara í „kennarastofunni“,“ segir Martin Jantzen, kennari í Lundtofte-skóla í Lyngby í Danmörku.

Åse Tyldum við Breidablikk-skóla í Þrándheimi í Noregi er á sama máli:

„Auðvelt er að komast í samband við kennara í öðrum norrænum löndum gegnum vefinn og nemendur geta líka auðveldlega myndað tengsl landa í milli. Á þessu skólaári hefur bekkurinn minn haft sænskan vinabekk og það hefur verið jákvæð upplifun fyrir bæði kennara og nemendur.“

Taktu þátt í að styrkja norræna heildarþáttinn í kennslunni. Nánari upplýsingar og forskráningareyðublað má nálgast á kynningarvefnum www.klimaduellen.org.

Ljósmynd: Daníel leikur í sandi, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
22. september 2014
Tilvitnun:
Norden - Norræna ráðherranefndin „Ný norræn loftslagsáskorun á að efla umhverfisvitund barna“, Náttúran.is: 22. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/22/ny-norraen-loftslagsaskorun-ad-efla-umhverfisvitun/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: