Í gær föstudaginn 27. júní, afhentu sjálfboðaliðar IFAW samtakanna og Hvalaskoðunarsamtaka Íslands Þóri Hrafnssyni upplýsingafulltra Atvinnuvegaráðneytisins f.h ráðherra 2.018 undirskriftir ferðamanna og Íslendinga sem heita því að borða ekki hvalkjöt og vilja að hvalveiðum verði hætt. Fyrir tveimur vikum var farið með 2.015 póstkort með jafn mörgum undirskriftum einstaklinga í ráðuneytið.

Sjálfboðaliðarnir að þessu sinni eru frá Sri Lanka, Suður Kóreu, Frakklandi, Rússlandi og Finnlandi. Um 60 sjálfboðaliðar alls munu í sumar, líkt og áður, ræða við ferðamenn og Íslendínga í Reykjavík um kosti þess að velja hvalaskoðun frekar en hvalveiðar og hvetja fólk til að velja þá veitingastaði sem merktir eru „Whale Friendly“ en lista um þá staði er að finna á heimasíðu Hvalaskoðunarsamtaka Íslands icewhale.is

Birt:
28. júní 2014
Höfundur:
IFAW
Uppruni:
IFAW
Tilvitnun:
IFAW „Rúmlega fjögur þúsund undirskriftir ferðamanna í júní afhentar sjávarútvegsráðherra“, Náttúran.is: 28. júní 2014 URL: http://nature.is/d/2014/06/28/rumlega-fjogur-thusund-undirskriftir-ferdamanna-i-/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: