Á undanförnum árum og mánuðum hefur umræða um skaðsemi plasts stóraukist meðal almennings, en plast getur valdið mjög neikvæðum áhrifum á heilsu og umhverfi. Lengi hefur verið vitað um þörf þess að draga úr notkun plasts í heiminum en þróunin hefur því miður verði þveröfug.

Umhverfishópur Stykkishólms fékk í ársbyrjun styrk frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu til að ráðast í tilraunaverkefni sem felur í sér að gera Stykkishólm að burðarplastpokalausu sveitarfélagi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Náttúrustofu Vesturlands, Landvernd, Umís/Environice og Stykkishólmsbæ.

Undirbúningur verkefnisins hófst í vor og stendur nú yfir. Hann felur m.a. í sér samráð við verslanaeigendur og Íslenska gámafélagið og leit að mismunandi gerðum poka sem geta leyst burðarplastpokana af hólmi í öllum þeim fjölbreyttu hlutverkum sem slíkir pokar hafa gegnt hingað til, bæði við innkaup og förgun úrgangs. Stefnt er á að þann 4. september verði burðarplastpokanotkun hætt með pompi og prakt í öllum verslunum í sveitarfélaginu.

Leitast er við að vinna verkefnið í sem mestri sátt og samvinnu við íbúa og starfsfólk verslunar og þjónustu. Umhverfishópurinn vonast til þess að Stykkishólmur verði fyrsta burðarplastpokalausa sveitarfélagið á Íslandi, íbúum og umhverfi til heilla. Enn fremur er stefnt að því að þekkingin sem verður til muni nýtast öðrum sveitarfélögum til að fylgja í kjölfarið. Um næstu áramót verður gefin út greinargerð um framvindu og árangur verkefnisins sem mun vonandi auðvelda öðrum að feta í fótspor Hólmara.

Birt:
4. júní 2014
Tilvitnun:
Theódóra Matthíasdóttir „Stykkishólmur – fyrsta burðarplastpokalausa sveitarfélagið á Íslandi?“, Náttúran.is: 4. júní 2014 URL: http://nature.is/d/2014/06/04/stykkisholmur-fyrsta-burdarplastpokalausa-sveitarf/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: