Markmið: Að hreyfa sig.

Aldursmörk: Frá 6 ára

Leiklýsing: Einn er valinn til að leika refinn en hinir leika lömbin. Refurinn er í einu horni salarins og snýr baki við hópnum. Stjórnandi ákveður hvað klukkan á að vera og sýnir lömbunum það á fingrunum. Lömbin koma svo til refsins og spyrja: „Hvað er klukkan gamli refur?” Refurinn snýr sér þá við og byrjar að giska. Allir verða að standa kyrrir á meðan. Ef refurinn giskar vitlaust neita lömbin en giski hann rétt hlaupa allir til baka og refurinn reynir að ná eins mörgum og hann getur. Þeir sem hann nær mega svo aðstoða næst.

Birt:
25. maí 2014
Tilvitnun:
Rakel Guðmundsdóttir „Hvað er klukkan gamli refur?“, Náttúran.is: 25. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/05/25/hvad-er-klukkan-gamli-refur/ [Skoðað:3. maí 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 22. ágúst 2014

Skilaboð: