Þriðjudaginn 16. apríl, 8:30-12:30, stendur Vörustjórnunarfélag Íslands fyrir ráðstefnu um rekjanleika og matvælaöryggi. Þrír erlendir sérfræðingar auk innlendra aðila sem starfa við aðfangakeðju matvæla og matvælaöryggi munu halda erindi á raðstefnunni sem verður á Grand Hótel Reykjavík.

Á ráðstefnunni verður leitað svara við hvernig hægt er að tryggja matvælaöryggi og koma í veg fyrir uppákomur líkar þeim sem verið hafa í umfjöllun. Ræddar verða meðal annars ræddar leiðir og lausnir til að tryggja rekjanleika matvæla.

Ráðstefnan er haldin í samvinnu við GS1 Ísland, Matís og Háskóla Íslands.

Sjá dagskrá á vef Vörustjórnunarfélas Íslands logistics.is.

Birt:
April 12, 2013
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ráðstefna um rekjanleika“, Náttúran.is: April 12, 2013 URL: http://nature.is/d/2013/04/12/radstefna-um-rekjanleika/ [Skoðað:Dec. 9, 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Messages: