Hefur þú áhuga á að ferðast, kynnast nýju fólki og upplifa öðruvísi menningu? Hvernig væri að skella sér til Ítalíu og upplifa menningu Sikileyjar og taka þátt í skemmtilegu verkefni?

SEEDS leitar nú að þátttakendum fyrir leiðtoga námskeið á vegum ungmennaskipta Evrópu unga fólksins á Ítalíu 17. – 23. apríl 2013! Námskeiðið mun fara fram í bænum Alcamo á Sikiley og ber það heitið "Lead For A Reason". Námskeiðið mun fara fram á ensku og þar munu hópar frá Íslandi, Króatíu, Eistlandi, Frakklandi, Grikklandi, Ítalíu og Lúxemborg koma saman og þróa leiðtogahæfileika sína.

Markmið námskeiðsins er að þjálfa þátttakendur í að leiða hópa, t.d. í verkefnum innan Evrópu unga fólksins, og skipuleggja sín eigin verkefni í sínum heimalöndum. Þátttakendur munu m.a. taka þátt í umræðum og fá þjálfun í að leysa vandamál sem geta komið upp þar sem hópar ólíkra einstaklinga eru saman komnir.

Námskeiðið er styrkt af ungmennaáætlun Evrópusambandsins og því munu þátttaknedur fá allt að 70% endurgreiðslu vegna ferðakostnaðar auk þess sem þeim er séð fyrir fæði og húsnæði á meðan að verkefninu stendur.

Allar nánari upplýsingar auk umsóknareyðublaðs er að finna hér.

Tekið er fyrir umsóknum og fyrirspurnum á outgoing@seeds.is

Frekari upplýsingar veitir Unnur Eyfells: outgoing@seeds.is

Birt:
8. apríl 2013
Tilvitnun:
Anna Lúðvíksdóttir „Evrópa unga fólksins - Sjálfboðaliðastörf á Sikiley“, Náttúran.is: 8. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2013/04/08/evropar-unga-folksins-sjalfbodalidastorf-sikiley/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: