Sumarhúsið og garðurinn - Námskeið á vorönn 2013
Áframhald verður á hinum vinsælu námskeiðum sem Sumarhúsið og garðurinn hefur staðið fyrir á höfuðborgarsvæðinu og víða um land síðastliðin tvö ár. Á höfuðborgarsvæðinu verða námskeiðin haldin í sal á þriðju hæð hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Hús 2, Engjavegi 6. Námskeiðin verða haldin á mánudögum og fimmtudögum auk þess sem fyrirtækjum og starfsmannahópum er boðið upp á kryddjurtanámskeið sem haldin eru á þeirra vinnustað eða annars staðar ef þess er óskað. Landsbyggðin á einnig kost á námskeiðum, en námskeið hafa m.a. verið haldin á Ísafiði, í Vestmannaeyjum á Akranesi, á Hvolsvalli, á Skagaströnd, á Patreksfirði og fleiri stöðum.
Námskeið á vorönn 2013
Matjurtarækt - Námskeið um ræktun, umhirðu og notkun matjurta
Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar.
- Tvö mánudagskvöld 28. jan. og 4. febrúar kl 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
- Tvö fimmtudagskvöld 14. og 21. febrúar kl 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
- Tvö mánudagskvöld 25. feb. og 4. mars kl 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
Skráning hér:
Kryddjurtir - námskeið um ræktun kryddjurta og notkun þeirra í matseld
Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar.
- Mánudagskvöld 28. janúar kl 17:00-19:00. Verð kr. 4.500.
- Mánudagskvöld 4. febrúar kl 17:00-19:00. Verð kr. 4.500.
- Fimmtudagskvöld 14. febrúar kl 17:00-19:00. Verð kr. 4.500.
- Fimmtudagskvöld 21. febrúar kl 17:00-19:00. Verð kr. 4.500.
Skráning hér:
Ræktun ávaxtatrjáa
Leiðbeinandi: Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur.
- Tvö fimmtudagskvöld 31. jan. og 7. febrúar kl. 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
- Tvö mánudagskvöld 11. og 18. febrúar kl. 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
- Tvö fimmtudagskvöld 28. feb. og 7. mars kl. 19:30-22:00. Verð kr. 12.800.
Skráning hér:
Ræktun berjarunna:
Leiðbeinendur: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar
- Fimmtudagskvöld 31. janúar kl. 17:00 - 19:00. Verð kr. 4.500.
- Mánudagskvöld 11. feb kl. 17:00 - 19:00. Verð kr. 4.500.
- Fimmtudagskvöld 28. mars kl. 17:00 - 19:00. Verð kr. 4.500.
Skráning hér:
Kennslustaður: Salur D á þriðju hæð hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Hús 2, Engjavegi 6.
Ljósmynd: Daníel Tryggvi Guðrúnar sons gægist út á milli tómata og piparmintuplöntu, Guðrún A. Tryggvadóttir
Birt:
Tilvitnun:
Auður I. Ottesen „Sumarhúsið og garðurinn - Námskeið á vorönn 2013“, Náttúran.is: 2. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2013/04/02/sumarhusid-og-gardurinn-namskeid-voronn-2013/ [Skoðað:25. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.