Áhyggjur af rotvarnarefni í barnakremi
Í nýlegri könnun danska neytendablaðsins Tænk kom í ljós að 9 af 26 tegundum barnakrema innihéldu rotvarnarefnið  fenoxýetanól, sem hefur þann kost að vera hvorki ofnæmisvaldur né  hormónaraskandi, en er hins vegar talið geta valdið lifrarskaða við  langvarandi notkun. Samkvæmt gildandi reglum í Evrópu mega snyrtivörur  innihalda allt að 1% fenoxýetanól, en Frakkar hafa beitt sér fyrir því  að þessi öryggismörk verði færð niður í 0,4% til að tryggja að  viðkomandi vörur séu öruggar fyrir börn. Öruggasta leiðin er þó að fara  sparlega með snyrtivörur þegar börn eiga í hlut og nota lífrænt vottaðar  vörur.
 (Sjá frétt á heimasíðu Tænk í gær).
Ljósmynd: Víkingur Ólafur Fjarki Sveinsson, fjögurra mánaða, Guðrún A. Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Áhyggjur af rotvarnarefni í barnakremi“, Náttúran.is: 21. mars 2013 URL: http://nature.is/d/2013/03/21/ahyggjur-af-rotvarnarefni-i-barnakremi/ [Skoðað:4. nóvember 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
		
