Þrír stórir framleiðendur og seljendur matvæla í Bretlandi hafa tekið höndum saman um að draga úr sóun í virðiskeðju matvælanna. Fyrirtækin sem um ræðir eru Nestlé, Sainsbury’s og Co-op, en ákvörðun þeirra kemur í kjölfar skýrslu sem birt var sl. þriðjudag, þar sem teknar voru saman niðurstöður 150 mismunandi athugana á lífsferli matvæla. Í skýrslunni er bent á tilteknar vörur þar sem tækifæri til úrbóta eru hvað mest, en í þeim hópi eru m.a. kartöflur og brauð. Fyrirtækin þrjú munu leggja áherslu á að greina tækifæri til úrbóta hvert á sínu sviði, allt frá bónda að matborði. Vonir standa til að með þessu takist að bæta nýtingu auðlinda og draga verulega úr myndun úrgangs.
(Sjá frétt EDIE 12. mars).

Ljósmynd: Í Krónunni, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
14. mars 2013
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Stórfyrirtæki taka sig á í matarmálum“, Náttúran.is: 14. mars 2013 URL: http://nature.is/d/2013/03/18/storfyrirtaeki-taka-sig-i-matarmalum/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 18. mars 2013
breytt: 6. mars 2014

Skilaboð: