HönnunarMars fer fram í fimmta skiptið, dagana 14. - 17. mars 2013. Það eru íslenskir hönnuðir og arkitektar sem bera hitann og þungann af dagskrá hátíðarinnar sem spannar langa helgi og býður til ótal viðburða, innsetninga og sýninga.

HönnunarMarsinn spannar vítt svið, allt frá helstu hönnuðum þjóðarinnar sem sýna hvað í þeim býr, til nýútskrifaðra hönnuða sem eru stíga sín fyrstu skref. Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum.

HönnunarMars 2013 hefst eins og áður með spennandi fyrirlestradegi, á fimmtudeginum 14. mars þar sem framúrskarandi erlendir hönnuðir og arkitektar veita innblástur með þekkingu sinni og reynslu. Á föstudeginum verður kaupstefnumótið DesignMatch haldið í Norræna húsinu þar sem íslenskum hönnuðum gefst tækifæri á að hitta norræna kaupendur.

Frá opnun hátíðarinnar á fimmtudeginum fram á sunnudag eru sýningar hönnuða og arkitekta opnar. Á HönnunarMars býðst tækifæri að auðga andann og hljóta innblástur af hinni taumlausu sköpunargleði sem ríkir innan hönnunarsamfélagsins.

Sjá nánar um dagskrá HönnunarMars hér.

Birt:
11. mars 2013
Höfundur:
Hönnunarmiðstöð
Tilvitnun:
Hönnunarmiðstöð „HönnunarMars 2013“, Náttúran.is: 11. mars 2013 URL: http://nature.is/d/2013/03/11/honnunarmars-2013/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: