Ágengar framandi tegundir ógna lífræðilegri fjölbreytni, heilsu manna og hagkerfum jafnvel enn meira en áður var talið, ef marka má tvær nýjar skýrslu Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA). Þar kemur m.a. fram að af þeim 395 tegundum evrópskra lífvera sem IUCN flokkar sem tegundir í bráðri útrýmingarhættu (e. critically endangered) séu 110 í hættu vegna ágengra framandi tegunda. Áætlað hefur verið að ágengar tegundir kosti Evrópu um 12 milljarða evra á ári (rúmlega 2.000 milljarða ísl. kr). Sem dæmi um þetta má nefna tjón á uppskeru af völdum Spánarsnigils og kostnað vegna zebrakræklings sem m.a. stíflar vatnssíur og kælivatnstanka.
(Sjá frétt á heimasíðu EEA í gær).

Birt:
23. febrúar 2013
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Ágengar tegundir enn meiri ógn en talið var“, Náttúran.is: 23. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/23/agengar-tegundir-enn-meiri-ogn-en-talid-var/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: