Ágengar tegundir enn meiri ógn en talið var
Ágengar framandi tegundir ógna lífræðilegri fjölbreytni, heilsu manna og  hagkerfum jafnvel enn meira en áður var talið, ef marka má tvær nýjar  skýrslu Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA). Þar kemur m.a. fram að af þeim 395 tegundum evrópskra lífvera sem IUCN flokkar sem tegundir í bráðri útrýmingarhættu (e. critically  endangered) séu 110 í hættu vegna ágengra framandi tegunda. Áætlað hefur  verið að ágengar tegundir kosti Evrópu um 12 milljarða evra á ári  (rúmlega 2.000 milljarða ísl. kr). Sem dæmi um þetta má nefna tjón á  uppskeru af völdum Spánarsnigils og kostnað vegna zebrakræklings sem  m.a. stíflar vatnssíur og kælivatnstanka.
 (Sjá frétt á heimasíðu EEA í gær).
Birt:
			23. febrúar 2013
		
		
			
				
			
			
			Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Ágengar tegundir enn meiri ógn en talið var“, Náttúran.is: 23. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/23/agengar-tegundir-enn-meiri-ogn-en-talid-var/ [Skoðað:4. nóvember 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
		
