Miðborg Lundúna án mengunar?
Boris Johnson borgarstjóri Lundúna kynnti í vikunni áform sín um að gera  miðborgina að fyrsta mengunarsnauða borgarhverfi í heimi (e. Ultra Low  Emission Zone) í þeim tilgangi að bæta loftgæði í borginni og stuðla að  hraðari orkuskiptum í samgöngum. Ef áformin verða að veruleika mega  aðeins ökutæki með lítinn sem engan útblástur aka um miðborgina á  venjulegum vinnutíma. Umhverfisverndarsinnar hafa efasemdir um þessi  áform, einkum ef þau verða ekki að fullu komin til framkvæmda fyrr en  árið 2020. Þeir telja að grípa þurfi til aðgerða af þessu tagi án tafar.
 (Sjá frétt EDIE 13. febrúar).
Birt:
			16. febrúar 2013
		
		
			
				
			
			
			Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Miðborg Lundúna án mengunar?“, Náttúran.is: 16. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/16/midborg-lunduna-mengunar/ [Skoðað:4. nóvember 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
		
