Árið 2011 seldust lífrænt vottaðar vörur í heiminum öllum fyrir tæplega 63 milljarða dollara (um 8.000 milljarða ísl. kr.) sem var um 6,6% aukning frá árinu áður. Salan hefur þá u.þ.b. þrefaldast á síðustu 10 árum. Hvergi er markaðshlutdeild lífrænnar matvöru hærri en í Danmörku, en þar voru lífrænar vörur 7,6% af heildinni árið 2011. Útflutningur Dana á lífrænt vottuðum vörum vex sömuleiðis mjög hratt. Þannig var útflutningsverðmætið árið 2011 21% hærra en árið áður. Vaxandi eftirspurn á heimsmarkaði er talin fela í sér einstök tækifæri fyrir Dani hvað þetta varðar.
(Sjá frétt á økologi.dk 12. febrúar).

Grafík: Eldhúsið og lífræn vottunarmerki, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
14. febrúar 2013
Höfundur:
Stefán Gíslason
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Sala á lífrænum vörum hefur þrefaldast á 10 árum“, Náttúran.is: 14. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/14/sala-lifraenum-vorum-hefur-threfaldast-10-arum/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: