Sala á lífrænum vörum hefur þrefaldast á 10 árum
Árið 2011 seldust lífrænt vottaðar vörur í heiminum öllum fyrir tæplega  63 milljarða dollara (um 8.000 milljarða ísl. kr.) sem var um 6,6%  aukning frá árinu áður. Salan hefur þá u.þ.b. þrefaldast á síðustu 10  árum. Hvergi er markaðshlutdeild lífrænnar matvöru hærri en í Danmörku,  en þar voru lífrænar vörur 7,6% af heildinni árið 2011. Útflutningur  Dana á lífrænt vottuðum vörum vex sömuleiðis mjög hratt. Þannig var  útflutningsverðmætið árið 2011 21% hærra en árið áður. Vaxandi  eftirspurn á heimsmarkaði er talin fela í sér einstök tækifæri fyrir  Dani hvað þetta varðar.
 (Sjá frétt á økologi.dk 12. febrúar).
Grafík: Eldhúsið og lífræn vottunarmerki, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.
Birt:
			14. febrúar 2013
		
		
			
			
			Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Sala á lífrænum vörum hefur þrefaldast á 10 árum“, Náttúran.is: 14. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/14/sala-lifraenum-vorum-hefur-threfaldast-10-arum/ [Skoðað:4. nóvember 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
		
