Samkeppni um bestu loftslagsverkefnin
Í fyrradag hleypti Connie Hedegaard, umhverfisstjóri Evrópusambandsins, formlega af stokkunum sérstakri samkeppni um besta loftslagsverkefnið. Tilgangurinn er að fá fram góð dæmi um aðgerðir einstaklinga og samtaka til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Frestur til að senda inn upplýsingar um verkefni er til 11. maí, og í maí og júní getur almenningur kosið um bestu verkefnin á þar til gerðri vefsíðu. Þrjú bestu verkefnin verða síðan verðlaunuð á Sustainiahátíðinni í Kaupmannahöfn í október. Samkeppnin er liður í átakinu A world you like. With a climate you like sem hófst í október 2012 og hefur vakið talsverða athygli, m.a. á Facebook.
(Sjá frétt á heimasíðu A world you like 11. febrúar).
Ljósmynd: Birki, Guðrún A. Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Samkeppni um bestu loftslagsverkefnin“, Náttúran.is: 13. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/14/samkeppni-um-bestu-loftslagsverkefnin/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 14. febrúar 2013