Japanskt frauðplast á fjörum Alaska
Gríðarlegt magn af japönsku frauðplasti hefur rekið á fjörur Alaska  síðustu mánuði. Þetta er ein af afleiðingum jarðskjálftans mikla í Japan  í mars 2011 og flóðbylgjunnar sem fylgdi í kjölfarið. Plastið er m.a.  úr einangrun húsa sem skemmdust í hamförunum og úr flotholtum á sjó.  Plastið hefur nú náð að berast þvert yfir Kyrrahafið og er víða að finna  á vesturströnd Bandaríkjanna. Erfiðast verður þó að hreinsa strendur  Alaska, þar sem svæðið er afskekkt og strandlínan löng.  Umhverfisverndarsinnar hafa áhyggjur af áhrifum plastsins á dýralíf, en  frauðplast brotnar seint eða aldrei niður í náttúrunni og getur m.a.  valdið köfnun og stíflað meltingarvegi dýra.
 (Sjá frétt PlanetArk 31. janúar).
Ljósmynd: Frauðplast, af reversgarbage.com.
Birt:
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Japanskt frauðplast á fjörum Alaska“, Náttúran.is: 7. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/07/japanskt-fraudplast-fjorum-alaska/ [Skoðað:4. nóvember 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
		
