Sameiginleg viska ef til vill mikilvægari en talið var

Sameiginleg viska (e. collective intelligence) kann að eiga enn stærri  þátt í tilveru hjarðdýra en áður var talið, ef marka má nýjar niðurstöður fræðimanna við Princeton háskólann sem birtar eru í vísindatímaritinu Science.  Takmarkaðar veiðar, röskun búsvæða eða aðrar aðgerðir manna sem fækka  einstaklingum í slíkum hópum niður fyrir tiltekið lágmark, minnka þéttni  hópanna eða skipta hópunum upp, geta jafnvel orsakað skyndilegt og  algjört hrun, þótt ekkert bendi til slíks fljótt á litið. Þetta getur  t.d. átt við um ýmsa farfugla og torfufiska, þar sem hópurinn kemst  auðveldlega leiðar sinnar þó að enginn einn einstaklingur í hópnum hafi  nokkra getu til þess upp á eigin spýtur.
 (Sjá frétt Science Daily 31. janúar, ljósmynd með frétt).
Birt:
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Sameiginleg viska ef til vill mikilvægari en talið var“, Náttúran.is: 4. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/05/sameiginleg-viska-ef-til-vill-mikilvaegari-en-tali/ [Skoðað:4. nóvember 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 5. febrúar 2013
		
