ALDA - félag um sjálfbærni og lýðræði heldur fund í kvöld í málefnahóp um sjálfbærni. Þar verður meðal annars fjallað um sjálfbærniverkefni, svokallað Sjálfbærniþorp, sem hefur verið í vinnslu innan hópsins.

Nú er að komast hreyfing á verkefnið og þá vantar gott fólk til góðra verka. Því hvetjum við alla þá er áhuga hafa á að byggja upp sjálfbært samfélag og taka þátt í skrefi til framtíðar að koma á fund í kvöld í Brautarholti 4.

Einnig munu nemar í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands koma á fundinn en þau eru að vinna að undirbúningi Grænna daga í HÍ.

Fundurinn hefst klukkan 20:00 og eru allir velkomnir!

Birt:
30. janúar 2013
Höfundur:
Sólveig Alda
Tilvitnun:
Sólveig Alda „Lýðræðisfélagið Alda - fundur um Sjáfbærniþorpið í kvöld“, Náttúran.is: 30. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/01/30/lydraedisfelagid-alda-fundur-um-sjafbaernithorpid-/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: