Engin ein aðgerð dugar til að draga úr myndun úrgangs, heldur þarf að beita fleiri stjórntækjum samtímis. Þetta er meginniðurstaða 6 ára þverfaglegs rannsóknaverkefnis á vegum Umhverfisstofnunar Svíþjóðar (Naturvårdsverket) undir yfirskriftinni Sjálfbær meðhöndlun úrgangs. Ef ekkert er að gert er talið að úrgangsmagnið tvöfaldist fram til ársins 2030. Eitt af því sem Svíar telja koma til greina til að sporna við þessari þróun er að banna alfarið urðun og brennslu tiltekinna úrgangsflokka sem með góðu móti er hægt að endurvinna. Jafnframt þurfa að verða breytingar í hönnun til að gera endurvinnslu fýsilegri. Þannig þarf að draga úr notkun hættulegra efna í framleiðslu og hanna vörur þannig að auðvelt sé að taka þær í sundur og aðskilja mismunandi efni. Önnur aðgerð sem nefnd hefur verið til að draga úr myndun úrgangs er að veita sérstaka skattaafslætti vegna viðhalds tækja, svipað og tíðkast varðandi viðhald íbúðarhúsnæðis.
(Sjá fréttatilkynningu Naturvårdsverket 23. janúar).

Ljósmynd: Innvols úr sjónvarpi, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
29. janúar 2013
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Samþætta þarf aðgerðir til að draga úr myndun úrgangs“, Náttúran.is: 29. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/01/29/samthaetta-tharf-adgerdir-til-ad-draga-ur-myndun-u/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: