Mér skjátlaðist varðandi loftslagsbreytingarnar – þetta er miklu miklu verra“, sagði Nicholas Stern í viðtali sem tekið var á efnahagsráðstefnunni í Davos fyrir helgi. Stern var höfundur skýrslu sem út kom árið 2006 og þótti marka nokkur tímamót í loftslagsumræðunni, þar sem þar var lagt hagfræðilegt mat á áhrif loftslagsbreytinga. Niðurstaða Sterns þótti sláandi á þeim tíma. Fleiri hafa talað tæpitungulaust í Davos, svo sem Jim Yong Kim, nýráðinn forseti Alþjóðabankans. Ef svo heldur sem horfir og meðalhitastig á jörðinni hækkar um allt að 4°C, telur hann að hvarvetna verði barist um vatn og fæðu. Góðu fréttirnar séu hins vegar þær að hægt sé að sveigja hagkerfið inn á rétta braut. Í grænu hagkerfi liggi gríðarleg tækifæri fyrir atvinnulífið.
(Sjá frétt The Guardian 26. janúar).

Ljósmynd: Nicolas Stern, af Guardian.co.uk.

Birt:
28. janúar 2013
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „„Miklu miklu verra““, Náttúran.is: 28. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/01/29/miklu-miklu-verra/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 29. janúar 2013

Skilaboð: