Varúðarreglan sannar gildi sitt
Varúðarreglan á nær alltaf rétt á sér við þróun nýrrar tækni.  Umhverfisstofnun Evrópu hefur skoðað 88 tilvik þar sem varnaðarorð þóttu  ástæðulaus og komist að þeirri niðurstöðu að aðeins í fjórum tilvikum  höfðu talsmenn varúðarinnar rangt fyrir sér. Oftar en ekki hafa menn  hunsað vísbendingar um hættu þar til ekki var lengur hægt að komast hjá  skaðlegum áhrifum á heilsu og umhverfi. Í skýrslunni „Late Lessons from Early Warnings, II“  eru 20 slík tilvik rakin ítarlega, þ.á.m. tilvik sem varða  kvikasilfursmengun frá iðnaði, frjósemisvandamál vegna notkunar  skordýraeiturs, hormónaraskandi efni í algengum plastvörum og lyf sem  hafa áhrif á vistkerfi. Einnig er hugað að vísbendingum varðandi tækni  sem nú er í notkun, svo sem farsíma, erfðabreyttar lífverur og  nanótækni. Í skýrslunni er sérstök áhersla lögð á mikilvægi þess að  vísindin taki tillit til samverkandi þátta í stað þess að einangra einn  þátt og einblína á áhrif hans. Mál þurfi að skoða í þverfaglegu samhengi  og bregðast fyrr við hættumerkjum, sérstaklega þegar um er að ræða  tæknibyltingar af einhverju tagi. Þeir sem valda skaða til frambúðar  ættu að bæta hann og menn ættu að varast að mistúlka orðin „engar  vísbendingar um skaðsemi“ sem „vísbendingar um enga skaðsemi“.
 (Sjá frétt á heimasíðu Umhverfisstofnunar Evrópu í fyrradag).
Birt:
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Varúðarreglan sannar gildi sitt“, Náttúran.is: 25. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/01/29/varudarreglan-sannar-gildi-sitt/ [Skoðað:4. nóvember 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 29. janúar 2013
		
