Í síðustu viku bættist Benetton í hóp þeirra 12 fataframleiðandenda sem áður höfðu heitið því að fara í afeitrun, þ.e.a.s. að hætta notkun hættulegra efna í framleiðslu sinni. Kveikjan að þessu framtaki fyrirtækjanna er svonefnt „Detox-átak“ Greenpeace, sem hófst árið 2011 og hefur það að markmiði að auka gagnsæi í umhverfismálum tískugeirans. Fyrsta skrefið í átaki Benetton er að opinbera upplýsingar um losun mengandi efna frá 30 helstu birgjum sínum á heimsvísu 2013. Fyrir árslok 2015 ætlar fyrirtækið að hætta notkun perflúorkolefna (PFC), og árið 2020 á öll notkun hættulegra efna að heyra sögunni til.
(Sjá frétt EDIE 17. janúar og umfjöllun 2020.is 17. desember 2012).

Mynd: Skjáskot af vef benetton.com.

Birt:
21. janúar 2013
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Benetton gengur til liðs við „Detox-hópinn““, Náttúran.is: 21. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/01/22/benetton-gengur-til-lids-vid-detox-hopinn/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 22. janúar 2013

Skilaboð: