Mikið magn af rusli, aðallega plastrusli, hefur safnast upp á botni Norður-Íshafsins á síðustu 10 árum. Þannig tvöfaldaðist magnið, mælt í stykkjatali, milli áranna 2002 og 2011, þ.e. úr 3.635 í 7.710 stykki á ferkílómetra. Þessar niðurstöður, sem birtust í vísindagrein í tímaritinu Marine Pollution Bulletin fyrir áramót, byggja á neðansjávarmyndum sem teknar voru vestur af Svalbarða. Plastið hefur margvísleg áhrif á lífríkið, svo sem með því að breyta efnasamsetningu við botninn, loka fyrir aðgang súrefnis og búa til skilyrði fyrir framandi lífverur, auk beinna eituráhrifa, köfnunarhættu o.s.frv. Áætlað er að um 10% af árlegri plastframleiðslu í heiminum endi í sjónum, líklega samtals um 27 milljónir tonna.
(Sjá frétt í Sience for Environment Policy, fréttabréfi Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um umhverfismál, í gær).

Birt:
18. janúar 2013
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Sífellt meira plastrusl á botni Norður-Íshafsins“, Náttúran.is: 18. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/01/18/sifellt-meira-plastrusl-botni-nordur-ishafsins/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: