Reglur um bílastæði fyrir visthæfa bíla hafa verið endurskoðaðar og gilda þær til 2015. En slíkum bifreiðum er heimilt að leggja án endurgjalds í 90 mínútur í gjaldskyld bílastæði á götum í Reykjavík með tilteknum takmörkunum. Reglugerðin er hér fyrir neðan:

Visthæfum ökutækjum  er heimilt að leggja án endurgjalds í 90 mínútur í gjaldskyld bílastæði á götum í Reykjavík með tilteknum takmörkunum.

Eftirfarandi visthæf ökutæki geta fengið umrædda heimild;

  • Bensín og dieselbílar og tvíorkubílar sem gefa frá sér minna en 120g koldíoxíð pr. km.
  • Bílar með brunahreyfli, sem ganga fyrir innlendum orkugjöfum svo sem metani, metanóli, og lífdíesel og gefa frá sér minna en 120g koldíoxíð pr. km.
  • Bílar sem ganga fyrir rafmagni, tengiltvinnbílar
  • Bílar sem ganga fyrir vetni.

Takmarkanir;

  • Gjaldfrelsi gildir einungis fyrir bifreiðar með klukkuskífum útgefnum af Reykjavíkurborg (sjá mynd hér að neðan).
  • Skráð eigin þyngd bifreiðar skal vera minni en 1.600 kg.
  • Tími gjaldfrelsis miðast við hverja ökuferð en endurnýjast ekki við tilflutning milli bílastæða.
  • Heimildin fellur niður sé bifreiðin á negldum hjólbörðum.

Reglur þessar gilda til 1. janúar 2015. Eldri reglur og heimildir falla úr gildi þann 1. janúar 2013.

Birt:
17. janúar 2013
Tilvitnun:
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur „Nýjar reglur um bílastæði fyrir visthæfa bíla“, Náttúran.is: 17. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/01/17/nyjar-reglur-um-bilastaedi-fyrir-visthaefa-bila/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: