Í nýrri könnun dönsku upplýsingamiðstöðvarinnar um umhverfi og heilsu kom í ljós að 11 tannkremstegundir af 57 sem skoðaðar voru, innihéldu parabena sem taldir eru geta raskað hormónastarfsemi líkamans. Parabenar hafa verið notaðir sem rotvarnarefni í ýmsar snyrtivörur, en óleyfilegt er að nota nokkra þeirra í snyrtivörur fyrir börn undir þriggja ára aldri. Tvær tannkremstegundir innihéldu parabena af þessum bannlista, þ.e.a.s. Viofluor Mint Gel og Sensodyne Rapid. Til að forðast parabena í tannkremi er ráðlegt að kaupa Svansmerkt tannkrem eða lesa innihaldslýsinguna vandlega áður en kaupin eru gerð.
(Sjá frétt á forbrugerkemi.dk 4. janúar).

Ljósmynd: Úr frétt á 2020.is af forbrugerkemi.dk.

Birt:
9. janúar 2013
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
2020.is
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Parabenar í fimmta hverju tannkremi“, Náttúran.is: 9. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/01/09/parabenar-i-fimmta-hverju-tannkremi/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: