Parabenar í fimmta hverju tannkremi
Í nýrri könnun dönsku upplýsingamiðstöðvarinnar um umhverfi og heilsu  kom í ljós að 11 tannkremstegundir af 57 sem skoðaðar voru, innihéldu  parabena sem taldir eru geta raskað hormónastarfsemi líkamans. Parabenar  hafa verið notaðir sem rotvarnarefni í ýmsar snyrtivörur, en óleyfilegt  er að nota nokkra þeirra í snyrtivörur fyrir börn undir þriggja ára  aldri. Tvær tannkremstegundir innihéldu parabena af þessum bannlista,  þ.e.a.s. Viofluor Mint Gel og Sensodyne Rapid. Til að forðast parabena í  tannkremi er ráðlegt að kaupa Svansmerkt tannkrem eða lesa  innihaldslýsinguna vandlega áður en kaupin eru gerð.
(Sjá frétt á forbrugerkemi.dk 4. janúar).
Ljósmynd: Úr frétt á 2020.is af forbrugerkemi.dk.
Birt:
			9. janúar 2013
		
		
			
				
			
			
			Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Parabenar í fimmta hverju tannkremi“, Náttúran.is: 9. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/01/09/parabenar-i-fimmta-hverju-tannkremi/ [Skoðað:4. nóvember 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
		
